Yfir 80 tilfelli greinst af apabólu

Apabóla hefur verið að skjóta upp kollinum í Bandaríkjunum, Evrópu …
Apabóla hefur verið að skjóta upp kollinum í Bandaríkjunum, Evrópu og Ástralíu.

Vísindamenn í Bretlandi hafa varað við því að fleiri tilfelli af apabólu muni greinast þar í landi en fleiri en 80 tilfelli hafa greinst í Evrópu, Bandaríkjunum og Ástralíu, þar af 20 í Bretlandi. 

Apabóla hefur aldrei áður greinst svo víða en hefur hingað til verið bundin við Mið- og Vest­ur-Afr­íku að sögn The GuardianÁ síðustu árum hafa þúsund­ir til­fella komið þar upp.

Sjúkdómurinn dreifist ekki auðveldlega á milli manna svo fjöldi tilfella í svo mörgum ríkjum veldur áhyggjum. 

Apabóla smitast við náið samneyti á milli manna. Fyrstu ein­kenni líkj­ast venju­leg­um flensu­ein­kenn­um. Smitaðir fá hita, bein- og vöðva­verki og eitl­ar bólgna. Í fram­hald­inu mynd­ast svo út­brot sem svip­ar til hlaupa­bólu­ein­kenna á and­liti og lík­ama.

„Ég er viss um að við munum sjá fleiri tilfelli,“ sagði Charlotte Hammer, sérfræðingur við Cambridge-háskóla í nýjum sjúkdómum, við The Guardian.

Að hennar sögn er meðgöngutími sjúkdómsins eina til þrjár vikur og því líklegt að fleiri tilfelli muni greinast hjá þeim sem höfðu samneyti við sýktan einstakling. 

Hammer telur líklegast að apabóla berist nú á milli heimsálfa með þessum hætti vegna kjöraðstæðna fyrir veiruna. 

Ekki er talið að al­menn­ingi stafi mik­il ógn af apa­bólu en flest­ir jafna sig á nokkr­um vik­um. Aðeins er vitað um eitt til­felli þar sem apa­bóla hef­ur dregið sjúk­ling til dauða. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert