Móna Lísa þakin köku

Móna Lísa er geymd bak við skothelt gler í Louvre-safninu …
Móna Lísa er geymd bak við skothelt gler í Louvre-safninu í París í Frakklandi. AFP

Málverk Leonardos da Vincis af Mónu Lísu var þakið köku í tilraun til skemmdarverka í Louvre-safninu í París í Frakklandi.

Maður dulbjó sig sem konu í hjólastól, stökk upp úr stólnum og reyndi að brjóta skothelt gler sem ver listaverkið, en það gekk ekki. Þá makaði hann köku yfir glerið, kastaði rósum út um allt og sagði að listamenn ættu að einblína meira á plánetuna.

Forsvarsmenn safnsins hafa ekki viljað tjá sig um atvikið, en sjónarvottar sáu öryggisverði vísa manninum í burtu. Listaverkið hefur verið bak við gler síðan árið 1956, þegar maður kastaði steini sem skemmdi vinstri olnboga Mónu Lísu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert