Loka fyrir gasflutning til Danmerkur

Olíu- og gasrisinn Gazprom er ósáttur við að hafa ekki …
Olíu- og gasrisinn Gazprom er ósáttur við að hafa ekki fengið greiðslur í rúblum. AFP/Natalía Kolesníkova

Rússneski olíu- og gasrisinn Gazprom Export mun loka fyrir gasflutning til Danmerkur á morgun, 1. júní, þar sem að danska orkufyrirtækið Orsted hefur neitað að borga fyrir reikninga sína í rúblum, rússneska gjaldmiðlinum. 

Samkvæmt upplýsingum frá Orsted hefur Gazprom tilkynnt að lokað verði fyrir afhendingu gass klukkan 6:00 að morgni til.

Rússar hafa þegar lokað fyrir flutning gass til Póllands og Búlgaríu. Þá hefur flutningur til Finnlands verið skertur.

Fylltu á geymslubirgðir

Danska fyrirtækið var viðbúið þessari ákvörðun og hafði því gripið til varúðarráðstafana og fyllt á geymslubirgðir í bæði Danmörku og Þýskalandi til að geta tryggt gas til viðskiptavina sinna í einhvern tíma.

Í yfirlýsingu Orsted í dag kemur fram að engin gasleiðsla liggi beint frá Rússlandi til Danmerkur og því geti Rússar ekki lokað beint fyrir gasið. 

„Aftur á móti þá þýðir þetta að gasið sem kemur til Danmerkur verður að miklu leyti að vera keypt á evrópskum gasmarkaði,“ segir í yfirlýsingunni.

Gerir fyrirtækið ráð fyrir að það sé mögulegt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert