Sorgmæddir bæjarbúar minntust 10 ára stúlku

Minningarathöfn var haldin í Uvalde í Texas um Amerie Jo Garza sem var nýorðin 10 ára þegar hún var skotin til bana í grimmilegri árás í barnaskóla bæjarins.

Ættingjar hennar söfnuðust saman á útfararstofu þar sem líkkistan var geymd. Hinum megin við götuna er skólinn, þar sem 19 börn og tveir kennarar voru myrt af byssumanni, vopnuðum hálfsjálfvirkri hríðskotabyssu.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert