Breytt sjónvarpsumfjöllun í Rússlandi

Maður gengur framhjá veggmynd af Pútín Rússlandsforseta í Belgrad, höfuðborg …
Maður gengur framhjá veggmynd af Pútín Rússlandsforseta í Belgrad, höfuðborg Serbíu. AFP/Andrej ISAKOVIC

Sjónvarpsáhorfendur í Rússlandi sjá aðeins útgáfu stjórnvalda í landinu af atburðarásinni í Úkraínu.

Í upphafi innrásar Rússa í landið var þeim ekki sagt að um stríð væri að ræða.

Núna kemur ítrekað fram í spjallþáttunum sem eru áberandi í sjónvarpinu að Rússar standi frammi fyrir þriðju heimsstyrjöldinni gagnvart Vesturlöndum.

BBC skoðaði hvernig umfjöllunin í landinu hefur breyst á þeim 100 dögum sem eru í dag liðnir síðan stríðið hófst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert