Morðingi skotinn til bana í Texas

Lögreglumaður að störfum í Texas. Myndin er úr safni.
Lögreglumaður að störfum í Texas. Myndin er úr safni. AFP

Lögreglan í Texas skaut til bana dæmdan morðingja sem slapp úr fangelsi og var grunaður um að hafa myrt fjölskyldu.

Lík fimm manns, eins fullorðsins og fjögurra barna, fundust í húsi skammt frá bænum Centerville í Leon-sýslu í Texas á fimmtudag.

Gonzalo Lopez var skotinn til bana í borginni Jourdanton í kjölfar skotbardaga sem hófst eftir að lögreglan lagði hald á stolinn bíl umræddrar fjölskyldu.

Lögreglan hafði leitað að Lopez í austurhluta Texas síðan hann slapp úr haldi 12. maí þegar verið var að flytja hann í annað fangelsi í rútu.

Lopez losaði sig úr fjötrum og tókst að saga sig í gegnum járnbúr í rútunni áður en hann réðst á ökumanninn og flúði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert