Segir Úkraínu hafa skotið eldflaugum á Hvíta-Rússland

Alexander Lúkasjenkó, forseti Hvíta-Rússlands.
Alexander Lúkasjenkó, forseti Hvíta-Rússlands. AFP

Alexander Lúkasjenkó, forseti Hvíta-Rússlands, sagði að her hans hefði skotið niður eldflaugar frá Úkraínu sem miðað var á landsvæði ríkisins.

„Það er verið að ögra okkur,“ hafði Belta, ríkisrekna fréttaveita Hvíta-Rússlands, eftir Lúkasjenkó. 

„Ég verð að segja ykkur að fyrir þremur dögum, kannski meira, reyndu þeir að sprengja hernaðarskotmörk í Hvíta-Rússlandi með eldflaugum frá Úkraínu.“

Forsetinn þakkaði guði fyrir loftvarnakerfi ríkisins sem hann sagði hafa skotið niður eldflaugarnar. 

Í síðustu viku sögðu yfirvöld í Úkraínu að Hvíta-Rússland hefði skotið eldflaugum á úkraínskt yfirráða svæði. 

Lúkasjenkó neitar að ríkið blandi sér í átökin í Úkraínu. „Eins og ég sagði fyrir meira en ári, við ætlum ekki að berjast í Úkraínu.“

Hvíta-Rússland hefur þó stutt hernaðaraðgerðir Rússa síðan stríðið hófst 24. febrúar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert