100 billjónir kr. til að endurbyggja Úkraínu

Eyðileggingin er gríðarleg í Úkraínu.
Eyðileggingin er gríðarleg í Úkraínu. AFP

Gert er ráð fyrir að það muni kosta 750 milljarða dollara að endurbyggja Úkraínu eftir innrás Rússa í landið. Það gera rúmlega 100 billjónir íslenskra króna, eða 100.000 milljarða kr.

Forsætisráðherra Úkraínu, Denis Sjmíhal, hefur krafist þess að haldlagðar rússneskar eignir verði notaðar til að koma hinu stríðshrjáða land aftur í fyrra horf.

„Við teljum að lykilfjármagn enduruppbyggingarinnar sé í eignum Rússlands og rússneskra auðjöfra sem hafa verið gerðar upptækar,“ sagði hann á ráðstefnu um endurreisn Úkraínu í Sviss.

„Rússnesk yfirvöld leystu þetta blóðuga stríð úr læðingi, þau ollu þessari miklu eyðileggingu og þau ættu að bera ábyrgðina,“ sagði hann.

Frá lísítsjansk.
Frá lísítsjansk. AFP

Ekki verkefni einnar þjóðar

Forseti Úkraínu, Volodimír Selenskí, ávarpaði einnig ráðstefnuna í gegnum fjarfundarbúnað og lagði áherslu á það að endurbygging Úkraínu væri ekki staðbundið verkefni einnar þjóðar.

„Þetta er sameiginlegt verkefni alls lýðræðisheimsins,“ sagði hann og benti á að „endurreisn Úkraínu væri stærsta framlag til stuðnings alþjóðlegs friðar“.

Á götum Slóvíansk.
Á götum Slóvíansk. AFP

Tveggja daga ráðstefnan var haldin í Lugano í suðurhluta Sviss og hafði verði skipulögð löngu fyrir innrásina. Upphaflega var á stefnuskrá að ræða um umbætur í Úkraínu.

Hér stóð áður verksmiðja í Karkív.
Hér stóð áður verksmiðja í Karkív. AFP
Selenskí ávarpar ráðstefnuna.
Selenskí ávarpar ráðstefnuna. AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert