Orkunotkun Bitcoin-náma jöfn Houston-borgar

Umhverfisfótspor rafmynta hefur aðeins að litlu leyti verið rannsakað.
Umhverfisfótspor rafmynta hefur aðeins að litlu leyti verið rannsakað. AFP/Geoffroy van der Hasselt

Raforkuþörf sjö stærstu Bitcoin-námufyrirtækja Bandaríkjanna er sögð jafn mikil og hjá öllum heimilum Houston-borgar til samans. Tæplega sex sinnum fleiri búa í borginni en á Íslandi.

Þetta kemur fram í frétt New York Times, en þetta eru niðurstöður úr rannsókn sem þingflokkur demókrata lét gera.

Niðurstöðurnar sýna fram á hvernig aukin rafmagnsnotkun vegna námugraftar á Bitcoin hefur hækkað rafmagnsreikning neytenda og gert baráttuna gegn hnatthlýnun erfiðari.

Hundrað sinnum fleiri tölvur

Í ljós kemur að fyrirtækin sjö nota allt að 1.045 megavött af rafmagni sem yrði nóg raforka fyrir heimili fjórðu fjölmennustu borg Bandaríkjanna, Houston.

Marathon Digital Holdings, eitt af stærstu rafmynta-námufyrirtækjum Bandaríkjanna, var með um 2000 tölvur í námugrefti á rafmyntum í fyrra. Á næsta ári stendur til að fjöldinn af tölvunum verði tæplega 200.000 þúsund sem er hundraðföld fjölgun á tveimur árum.

Demókratar vilja að þeir sem standa í námugrefti á rafmynt þurfi að gefa upp rafmagnsnotkun sína. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert