Stöðnun Grikklands senn á enda

Ráðherrann boðar breytta tíma sem muni einkennast af vexti, sameiningu …
Ráðherrann boðar breytta tíma sem muni einkennast af vexti, sameiningu og hagsæld. LOUISA GOULIAMAKI

Tólf ára löngu eftirliti Evrópusambandsins, með ríkisfjármálum Grikklands af, lýkur í dag. 

Í nóvember árið 2009 kom í ljós gríðarlegur halli gríska ríkissjóðsins. Hafði það í för með sér alvarlegar afleiðingar á efnahag alls Evrusvæðisins en Grikkland var afar illa statt í áratug. 

Grikkland fékk þá 289 milljónir evra lán frá Evrópusambandinu. Í skiptum fyrir það var þess krafist af Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, ESB og Seðlabanka Evrópu, að farið yrði í allsherjar umbætur á utanumhaldi ríkisfjármála í Grikklandi. 

Þær fólu í sér talsverð útgjöld ríkisins, launaskerðingar, hækkun skatta, einkavæðingar og aðrar sambærilegar aðgerðir. 

Grískt hagkerfi dróst saman um fjórðung, atvinnuleysi varð 28 prósent og sérhæft vinnuafl flutti burt úr landinu í stórum stíl. 

Sársauki og stöðnun á enda

„Tólf ára ferli, sem hefur haft í för með sér sársauka fyrir íbúa Grikklands, valdið efnahagslegri stöðnun og sundrað samfélaginu, er nú á enda,“ sagði Kyriakos Mitsotakis, forsætisráðherra landsins í tilefni dagsins. 

Ráðherrann boðar breytta tíma sem muni einkennast af vexti, sameiningu og hagsæld. Þá bendir hann aukinn hagvöxt á undanförnu ári. Á sama tíma hefur atvinnuleysi þar minnkað um þrjú prósent.

Nú þegar Grikkland er ekki lengur undir smásjá Evrópusambandsins, styrkir það stöðu landsins á alþjóðlegum markaði og verður það meira aðlaðandi kostur fyrir erlenda fjárfesta. Þá munu stjórnvöld í Grikklandi einnig öðlast betri stjórn á efnahagsmálum sínum. 

Áætla að skuldin verði uppgerð 2070

Engu að síður verður enn fylgst með Grikklandi, líkt og gert er í tilfelli Spánar, Portúgal, Kýpur og Írlands, þar til þessum þjóðum tekst að greiða til baka skuldir sínar að fullu. 

Í tilfelli Grikklands er fremur langt í land, en áætlað er að landið borgi til baka skuldir sínar árið 2070. 

Samkvæmt spám Evrópuráðsins mun hagvöxtur í Grikklandi verða 4 prósent á komandi ári, en meðal hagvöxtur á Evrusvæðinu er 2,6 prósent. 

Grikkland er þó enn það land sem hefur hæst hlutfall atvinnulausra, lágmarkslaun þar eru þau lægstu á Evrusvæðinu, og skuldir ríkissjóðs samsvara 180 prósent af þjóðarframleiðslu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert