Svíþjóðardemókratar með næst mest fylgi

Jimmie Akesson, formaður Svíþjóðardemókratanna.
Jimmie Akesson, formaður Svíþjóðardemókratanna. SCANPIX SWEDEN

Öfga-hægri flokkurinn Svíþjóðardemó­krat­ar bættu við sig töluverðu fylgi í nýjustu skoðanakönnuninni í Svíþjóð en tvær vikur eru nú til stefnu fram að kosningum þar í landi. 

Flokkurinn er nú með næst mest fylgi á eftir Sósíaldemókrötum sem hefur lengi verið stærsti flokkurinn í Svíþjóð. Svíþjóðardemó­krat­ar hlutu á milli 20 til 23 prósenta fylgi í þrem skoðanakönnunum sem voru birtar í þessari viku.

Niðurstöður kannananna sýna aukna andstöðu gegn innflytjendum og aukinn vilja til að herða aðgerðir gegn glæpum. Helstu baráttumál Svíþjóðardemó­krat­ar eru að berjast gegn glæpum og minnka komu innflytjenda.

Sósíaldemókratar, flokkur Magdalenu Andersson forsætisráðherra Svíþjóðar, hlaut 30 prósent fylgi í nýjustu könnunum. Moderaterna flokkurinn sem hefur vanalega verið í öðru sæti í kosningum situr nú í þriðja sæti í Svíþjóð miðað við kannanir og mælist með sextán til átján prósent fylgi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert