Eftirlitsteymið á leið í kjarnorkuverið

Grossi ræðir við blaðamenn á hóteli í Kænugarði í morgun.
Grossi ræðir við blaðamenn á hóteli í Kænugarði í morgun. AFP/Sergei Chuzavkov

Starfsmenn Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar eru lagðir af stað frá Kænugarði, höfuðborg Úkraínu, til að sinna eftirliti í kjarnorkuverinu Saporisjía í suðurhluta landsins.

Kjarnorkuverið, sem er það stærsta í Evrópu, hefur lent í víglínu á milli rússneskra og úkraínskra hersveita. 

Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu, ásamt Grossi í gær.
Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu, ásamt Grossi í gær. AFP

„Loksins erum við komin á ferðina,“ sagði Rafael Grossi, yfirmaður stofnunarinnar. Hann kom til Kænugarðs á mánudag ásamt þrettán manna eftirlitsteymi.

Grossi sagði að teymið muni eyða „nokkrum dögum“ í kjarnorkuverinu og senda síðan frá sér skýrslu.

Eftirlitsteymið með Grossi í fararbroddi.
Eftirlitsteymið með Grossi í fararbroddi. AFP

Saporisjía hefur verið undir stjórn Rússa síðan í mars síðastliðnum. Úkraínumenn hafa sakað Rússa um að gera út mörg hundruð hermenn þaðan og geyma þar skotvopn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert