Yfir þúsund mótmælendur handteknir í Rússlandi

Lögreglan í st. Pétursborg hefur notast við kylfur til að …
Lögreglan í st. Pétursborg hefur notast við kylfur til að slá niður mótmælendur. AFP

Fleiri en þúsund manns hafa verið handteknir við mótmæli víðs vegar í Rússlandi í dag. Mótmæli gegn innrásinni í Úkraínu brutust út í fjölda borga í Rússlandi eftir að forsetinn Vladimír Pútín tilkynnti herkvaðningu.

Eins og greint hefur verið frá stendur til að virkja 300 þúsund manna varalið og tók sú ákvörðun gildi í dag. 

Um hundrað manns voru handteknir í St. Pétursborg þar sem lögreglan í borginni notaði kylfur til að berja niður mótmælendur. 

Fréttastofa CNN greinir frá því að myndefni hafi borist frá ýmsum rússneskum borgum af hörðum aðgerðum lögreglu gegn mótmælendum.

Embætti saksóknara í Moskvu gaf frá sér yfirlýsingu í dag í kjölfar mótmælanna. Þar varaði saksóknari fólk við því að mótmæla og sagði að þeir sem gerðu það gætu átt yfir höfði sér fimmtán ára fangelsisdóm.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert