32 börn á meðal látinna

Leikmenn og starfsmenn Arema FC minnast fórnarlambanna.
Leikmenn og starfsmenn Arema FC minnast fórnarlambanna. AFP/Juni Kriswanto

Að minnsta kosti 32 börn voru á meðal þeirra 125 sem létust í troðningnum sem varð á knattspyrnuleikvangi í Indónesíu um helgina.

Embættismaður indónesísks ráðuneytis sem fer m.a. með málefni barnaverndar greindi frá þessu.

„Út frá nýjustu tölum sem við höfum fengið þá voru 32 börn á meðal þeirra 125 sem létust. Yngsta barnið var þriggja eða fjögurra ára, sagði embættismaðurinn Nahar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert