Góður árangur úkraínskra hersveita í suðri

Úkraínskt eldflaugakerfi skýtur eldflaug í átt að hersveitum Rússa í …
Úkraínskt eldflaugakerfi skýtur eldflaug í átt að hersveitum Rússa í suðurhluta Úkraínu í gær. AFP/Genya Savilov

Úkraínskar hersveitir hafa endurheimt aukið landsvæði í þeim héruðum sem Rússar innlimuðu á ólöglegan hátt á dögunum. Þær sækja fram skammt frá borginni Kerson í Kerson-héraði í suðurhluta Úkraínu og hafa einnig náð umtalsverðum árangri í austri.

Rússneskir embættismenn í Kerson-héraði staðfestu framgang úkraínsku hersveitanna en sögðu að rússneskir hermenn létu ekki sitt eftir liggja.

Í austri fóru Úkraínumenn inn í Luhansk-hérað, sem Rússar hafa á sínum völdum, að sögn BBC.

Volodimír Selenskí.
Volodimír Selenskí. AFP

„Harðir bardagar halda áfram“

Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu, sagði í ávarpi sínu að það væru „íbúabyggðir á þó nokkrum svæðum sem hafa nýlega verið frelsaðar“, án þess að greina nánar frá því.

Selenskí sagði einnig að „harðir bardagar haldi áfram á mörgum svæðum“.

Í suðri viðurkenndi Vladimir Saldo, leiðtogi Rússlands í Kerson-héraði, að úkraínskar hersveitir hefðu brotið sér leið á svæði skammt frá bænum Dudchany sem er staðsettur við ána Dnipro.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert