Musk og Selenskí deila á Twitter um friðaráætlun

Elon Musk og Volodimír Selenskí.
Elon Musk og Volodimír Selenskí. Samsett mynd

Bandaríski auðkýfingurinn Elon Musk lenti í deilum við úkraínska embættismenn á Twitter í gær, þar á meðal Volodímír Selenskí Úkraínuforseta, vegna hugmynda Musk um leið til að binda enda á stríðsátökin í Úkraínu. 

Musk lagði til gerð friðarsamkomulags sem byggði m.a. á því að aftur yrði kosið í þeim héruðum Úkraínu, sem Rússar höfðu innlimað, en undir eftirliti Sameinuðu þjóðanna. Þá lagði hann til að stjórn Rússa yfir Krímskaga yrði viðurkennd formlega og að Úkraína fengið stöðu sem hlutlaust ríki. Þessar hugmyndir fóru misjafnlega ofan í fólk.

Musk, sem er stofnandi Tesla og SpaceX, bjó til skoðanakönnum sem fylgjendur hans á Twitter, sem eru 107 milljónir, gátu tekið þátt í. 

Selenskí svaraði Musk með því að birta aðra könnun á Twitter. En hann gaf Musk tvo svarmöguleika er hann spurði hvort hann líkaði betur við þann sem styður Úkraínu eða þann sem styður Rússa. 

Andrí Melnyk, sendiherra Úkraínu í Þýskalandi, var ómyrkur í máli þegar hann skrifaði: „Hypjaðu þig! – það er mitt diplómatíska svar [við Musk].“

Mykhailo Podolyak, einn ráðgjafa Úkraínuforseta, lagði til „betri friðaráætlun“ sem byggði á því að Úkraína myndi endurheimta öll sín héruð, þar á meðal Krím. Rússland yrði jafnframt afvopnað og öll kjarnavopn tekin af þeim og að „stríðsglæpamenn“ myndu svara til saka fyrir alþjóðlegum dómstól. 

Musk sagði síðar að Rússar gætu blásið til sóknar sem myndi leiða til allsherjarstríðs með tilheyrandi mannfalli hjá báðum fylkingum, en Musk benti líka á að Rússar væru mun fjölmennari en Úkraínumenn. 

„Það er ólíklegt að Úkraína sigri í allsherjarstríði. Ef þér er annt um Úkraínumenn þá skaltu sækjast eftir friði,“ skrifaði Musk á Twitter. 

Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefur skorað á Úkraínu að láta af vopnuðum átökum og setjast að samningaborðinu, en hann tilkynnti nýverið um herkvaðningu til að efla hersveitir Rússa í stríðsátökunum, auk þess sem hann hefur hótað að beita kjarnorkuvopnum. 

Selenskí hefur sagt að hann muni aldrei semja við Rússa svo lengi sem Pútín sitji þar á valdastóli. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert