Evrópusambandið hefur fordæmt yfirvöld í Norður-Kóreu fyrir að skjóta fleiri en 20 flugskeytum yfir landhelgi Suður-Kóreu á einum degi. Þar af var eitt sem lenti nálægt ströndum ríkisins.
Charles Michel, forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins, sagði í tísti að hann væri „hneykslaður yfir ofstopafyllri og ábyrgðalausri hegðun Pyongyang [höfuðborgar Norður-Kóreu].“
Þá sagði hann að Evrópusambandið styddi Suður-Kóreu og önnur nálæg ríki.
Talsmaður Josep Borrell, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, sagði í tísti að flugskeytin mörkuðu hættulega stigmögnun á brotum Norður-Kóreu á ályktunum Sameinuðu þjóðanna.
Evrópusambandið hefur hvatt Norður-Kóreu til þess að hætta þessum aðgerðum sem eru „ólöglegar og skapa óstöðugleika“ og hefja viðræður að nýju til að tryggja frið og öryggi á Kóreuskaganum.