Næstum 50 látnir í Bandaríkjunum

Fólk á gangi í borginni Buffalo í gær.
Fólk á gangi í borginni Buffalo í gær. AFP/Joed Viera

Næstum 50 manns eru látnir víðs vegar um Bandaríkin vegna veðurs. Ástandið í New York-ríki hefur verið slæmt, sérstaklega í borginni Buffalo, og hafa yfirvöld í ríkinu lýst veðrinu sem „stórhríð aldarinnar“.

Lík hafa fundist í bifreiðum og undir snjó. Björgunarsveitir hafa gengið á milli bíla í leit að fólki á lífi.

Alls hafa 49 manns fundist látnir í níu ríkjum.

Frá borginni Buffalo í gær.
Frá borginni Buffalo í gær. AFP/John Normile/Getty
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert