Myrkvuð borg og jólin undir sprengjudrunum

Aðeins ljós úr einstaka gluggum, bílljós og tunglskin lýsa upp …
Aðeins ljós úr einstaka gluggum, bílljós og tunglskin lýsa upp borgina. Slökkt er á öllum götuljósum, klukkan er 18.00. Ljósmynd/Ok­sana Jó­hann­es­son

Jól undir loftvarnaflautanið, vegna eldflaugaárása Rússa, og árásardróni sprengdur upp frekar en rakettur um áramót.

Þetta var meðal þess sem Jón Gauti Jóhannesson fréttaritari mbl.is og Morgunblaðsins upplifði í Kænugarði yfir hátíð rétttrúnaðarkirkjunnar á síðustu vikum. 

Hann gefur lesendum innsýn inn í þetta líf, nú þegar styttist í að eitt ár sé frá því að innrásin í Úkraínu hófst:

Geislar leika á himni

Kænugarður hélt áramót og rétttrúnaðarjól án ljóss, skreytinga og mannmergðar. Rússar skutu eldflaugum á borgina á aðfangadag, gamlársdag og nýjársdag. Á gamlársdag ómuðu loftvarnaflautur á hádegi og sprengjur féllu á orkuinnviði borgarinnar tveim tímum síðar.

Á miðnætti ómuðu loftvarnaflautur á ný og skömmu síðar heyrðust drunur í fjarska. Við fórum út á svalir og sáum geisla leitarljósa leika á himninum yfir miðborg Kænugarðs.

Loftvarnasveitir eru að leita að árásardrónum.

Við komum auga á einn slíkan beint fyrir ofan húsið okkar, leitarljósin lýsa hann upp og eftir nokkrar sekúndur er hann skotinn niður og brakið fellur til jarðar skammt frá okkur. Áramót að hætti Úkraínu 2023.

Par á göngu á einni aðalgötu Kænugarðs, Sagadaítsjní-götu í Podil-hverfi.
Par á göngu á einni aðalgötu Kænugarðs, Sagadaítsjní-götu í Podil-hverfi. Ljósmynd/Ok­sana Jó­hann­es­son

Einmanalegt jólatré

Rafmagn, hiti og vatn er skammtað í Kænugarði og öðrum borgum Úkraínu eftir harðar árásir Rússa á dreifstöðvar og innviði orkugeirans undanfarnar vikur. Útgöngubann er í gildi frá 11 að kvöldi til 5 að morgni.

Eftir sólsetur er höfuðborg Úkraínu myrkvuð, einungis tunglskin, bílljós og ljós úr gluggum varpa daufri birtu á breiðgötur og stræti. Fáir eru á ferli eftir sólsetur. Á torgi heilagrar Soffíu, miðpunkts jólamarkaðar Kænugarðs árum áður, eru engir básar og engin umferð fólks.

Jólamarkaðurinn var einn sá besti í Evrópu með tugi bása og gnótt hefðbundinna úkraínskra rétta. Nú stendur þar einmanalegt jólatré með þríforki á toppnum, skjaldarmerki Úkraínu, ríkis sem er ósigrað í þessu stríði og sækir fram.

Hermaður, sem hlotið hefur sár, horfir yfir aðaltorg Kænugarðs. Hann …
Hermaður, sem hlotið hefur sár, horfir yfir aðaltorg Kænugarðs. Hann særðist í Maríupol. Smáfánarnir fyrir framan hann eru til minningar um fallna hermenn. Ljósmynd/Ok­sana Jó­hann­es­son

Heimur! Hjálpið okkur!

Við gengum nýverið um fámennar götur borgarinnar undir fullu tungli og tókum myndir af því sem bar fyrir augu. Hermaður sem særðist á vígstöðvunum horfir yfir aðaltorg Kænugarðs, Maidan. Fyrir framan hann eru hundruð úkraínskra smáfána til minningar um þá sem hafa fallið.

Fólk á kaffihúsi. Díselknúnir rafalar halda starfsemi gangandi þegar rafmagni …
Fólk á kaffihúsi. Díselknúnir rafalar halda starfsemi gangandi þegar rafmagni slær út. Ljósmynd/Ok­sana Jó­hann­es­son

Kirkjuklukka glymur og munkar halda til bæna í klaustri við dómkirkju heilags Mikaels. Einungis tunglskinið lýsir upp klaustrið og kirkjuna. Skuggar munkana leika á veggjum klaustursins.

Á torginu fyrir framan kirkjuna hefur minnismerki tileinkað prinsessunni Olgu verið hlaðið sandpokum til að verja hana hugsanlegum sprengjuárásum. Á borða sem strengdur er yfir sandpokana stendur: „Heimur! Hjálpið okkur!“ Öll minnimerki í borginni eru hlaðin sandpokum, en þannig vernda Úkraínumenn sögu sína og arfleið.

Grænn kaffivagn í miðborg Kænugarðs.
Grænn kaffivagn í miðborg Kænugarðs. Ljósmynd/Ok­sana Jó­hann­es­son

Draugaborg eftir sólsetur

Í almenningsgarði að baki dómkirkjunnar lýsir farsími upp andlit pilts, sem er að tala við kærustu sína í Póllandi. Úr almenningsgarðinum er útsýni yfir vinstri bakka Kænugarðs, sem næstum ósýnilegur vegna myrkurs.

Það sigla engir fljótabátar á ánni Dnépr lengur, en fyrir stríð voru þeir margir, fljótandi skemmtistaðir. Par helst í hendur og gengur eftir mannfárri götu í hinu sögufræga Podíl-hverfi, sem fyrir stríð iðaði af mannlífi. Stríðið hefur breytt hinni fornu borg á sjö hæðum við árbakka Dnépr í draugaborg eftir sólsetur.

Barnaleikvöllur í tunglskini. Stytta af barni teygir sig í átt …
Barnaleikvöllur í tunglskini. Stytta af barni teygir sig í átt að tunglinu. Ljósmynd/Ok­sana Jó­hann­es­son

Díseldrunur heyrast víða

Loftvarnaflautur ýlfra allt í einu og gera andann í hinni myrkvuðu borg uggvekjandi. Við leitum skjóls í yfirbyggðu húsasundi og bíðum átekta. Rússar geta verið að skjóta eldlfaugum úr sprengjuflugvélum og herskipum svartahafsflotans.

Eftir um 20 mínútur sjást leiftur við útjaðar borgarinnar og síðan heyrast sprengingar. Rússar eru að skjóta á innviði borgarinnar í miskunnarlausri tilraun til að brjóta á bak aftur baráttuþrek borgarbúa. Það er ekkert sem bendir til þess að þeim takist ætlunarverk sitt, hvorki hér né í öðrum borgum Úkraínu.

Íbúar borgarinnar hafa birgt sig upp af vatni, prímusum, vasaljósum, rafhlöðum og matvælum sem skemmast ekki. Drunur díselknúinna rafala heyrast víða. Rafalarnir halda verslunum og veitingahúsum gangandi þegar rafmagni slær út. Ómur þeirra er eitt af táknum borgar undir sprengjuárásum.

Fólk tekur myndir fyrir framan hertól við dómkirkju heilags Mikaels.
Fólk tekur myndir fyrir framan hertól við dómkirkju heilags Mikaels. Ljósmynd/Ok­sana Jó­hann­es­son

Frost getur náð tuttugu gráðum

Það gera allir sér grein fyrir því að þetta verður erfiður vetur með tíðu rafmagnsleysi, vatnsleysi, hitaleysi og símasambandsleysi, vetur sem borgarbúar hafa ekki þekkt síðan í síðari heimstyrjöldinni. Það verður ófremdarástand ef hitaleysi verður langvinnt, því hitastig getur fallið niður í -20 gráður yfir vetrartímann.

Borði með yfirskriftina „Heimur! Hjálpið okkur!“ stengdur yfir sandpoka á …
Borði með yfirskriftina „Heimur! Hjálpið okkur!“ stengdur yfir sandpoka á Mikaelstorgi. Sandpokarnir umlykja styttur og minnismerki í borginni til að vernda sögu og menningu Úkraínu. Ljósmynd/Ok­sana Jó­hann­es­son

Maður með hund birtist í húsasundinu og kastar á okkur kveðju. Við tökum hann tali. Hann heitir Mykola og segist siðferðilega vel búinn undir veturinn.

„Þær þjáningar sem við munum ganga í gegnum er lítið samanborið við herinn á vígstöðvunum. Meðan herinn berst og sækir fram getum við tekist á við hvað sem er. Sigurinn verður okkar. Slava Úkraíní!“.

Piltur í almenningsgarði talar við kærustu sína í Póllandi og …
Piltur í almenningsgarði talar við kærustu sína í Póllandi og sýnir henni hvernig umhorfs er. Stúlkan er undrandi á myrkvun borgarinnar. Ljósmynd/Ok­sana Jó­hann­es­son

Við höldum heim á leið eftir dimmum götum borgarinnar. Útgöngubann er að skella á. Við sýnum skilríki okkar á eftirlitsstöð skammt frá heimili okkar. „Það eru tvær mínútur í útgöngubann“, segir hermaður við okkur.

„Þið eigið að vera komin í háttinn á þessum tíma“, segir hann brosandi og veifar okkur í gegn. Þegar við komum heim er rafmagn og hiti farinn af íbúðinni, en við höfum rennandi vatn og gas. Við klæðum okkur í yfirhafnir, kveikjum á kerti og veltum fyrir okkur hvað morgundagurinn mun bera í skauti sér.

Maður viðrar hundinn sinn í almenningsgarði. Í bakgrunninum eru háhýsi …
Maður viðrar hundinn sinn í almenningsgarði. Í bakgrunninum eru háhýsi sem fyrir stríð voru að fullu upplýst. Ljósmynd/Ok­sana Jó­hann­es­son
Sandpokar fyrir gluggum í göngugötu í miðborginni í hinu sögufræga …
Sandpokar fyrir gluggum í göngugötu í miðborginni í hinu sögufræga Podíl-hverfi. Ljósmynd/Ok­sana Jó­hann­es­son
Sjálfstæðisstyttan á sjálfstæðistorginu, Maidan, undir fullu tungli. Styttan er 62 …
Sjálfstæðisstyttan á sjálfstæðistorginu, Maidan, undir fullu tungli. Styttan er 62 metra há og var reist árið 2001 til að minnast 10 ára sjálfstæðis Úkraínu. Fáir áttu von á því að rúmlega 20 árum síðar yrði þessu sjálfstæði ógnað með allsherjarinnrás Rússlands. Ljósmynd/Ok­sana Jó­hann­es­son
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert