Fundu enn fleiri leynileg skjöl

Joe Biden Bandaforseti.
Joe Biden Bandaforseti. AFP/Kevin Dietsch

Aðstoðarmenn Joe Biden Bandaríkjaforseta hafa fundið fimm leynileg skjöl til viðbótar því sem upprunalega fannst á fimmtudag á heimili forsetans í Wilmington-borg í Delaware-ríki á austurströnd Bandaríkjanna. Sex leynileg skjöl hafa því fundist þar í þessari viku, að því er New York Times greinir frá.

Skjölin fimm fundust rétt eftir fund fimmtudagsins að því er New York Times hefur eftir ónefndum heimildarmanni. Fundust skjölin á geymslusvæði nærri bílskúr við heimili forsetans.

Hvíta húsið hef­ur þegar staðfest að leynileg skjöl hafi fund­ist í læst­um skáp í hús­næði í Washingt­on sem Biden notaði áður en hann varð for­seti. Skjöl­in ná aft­ur til þess tíma þegar hann var vara­for­seti Baracks Obama.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert