Bráðabirgðafjárlög voru samþykkt á Bandaríkjaþingi aðeins nokkrum klukkustundum fyrir upphaf nýs fjárlagaárs.
Allt stefndi í að ríkisstofnunum yrði lokað ef sátt næðist ekki á þinginu.
Það var Kevin McCarthy, leiðtogi Repúblikana í fulltrúadeild, sem lagði fram frumvarpið en harðlínuflokksmenn Repúblikana höfðu sumir hótað því að fjarlæga McCarthy úr stöðu sinni sem leiðtogi þingflokksins.
Bráðabirgðafjárlögin tryggðu starfsemi ríkisstofnanna í 45 daga, eða til 17. nóvember.
Í fjárlögunum er ekki að finna stuðning Bandaríkjamanna við Úkraínumenn líkt og Joe Biden forseti hafði krafist.
Biden undirritaði fjárlögin og sagðist í yfirlýsingu fullviss um að McCarthy myndi standa við loforð sitt um stuðninginn.