Neyðarástandi hefur verið lýst yfir á Seychelles-eyjum eftir mikla sprengingu í iðnaðarhverfi á eyjunni Mahé og einnig vegna flóða.
Sprengingin varð í sprengiefnageymslu og jafnaði hús í nærumhverfinu við jörðu en að minnsta kosti 66 manns slösuðust. Flugvöllur Mahé-eyjar varð einnig fyrir tjóni þrátt fyrir að vera um fjórum kílómetrum frá geymslunni.
Nokkur heimili hafa verið rýmd í kjölfarið.
Til að bæta gráu ofan á svart var mikil rigning yfir nóttina sem hefur ollið flóðum og aurskriðum víða á eyjunni og aukið álagið á viðbragðsteymi.
Forseti Seychelles-eyja, Wavel Ramkalawan, hefur sett útgöngubann á alla íbúa, að undanskildu framlínustarfsfólki.
Ramakalawan lýsti ástandinu sem hörmulegu og biðlaði til íbúa að sýna þeim sem verst hafa orðið fyrir barðinu á hörmungunum samstöðu.
Áhyggjur hafa verið uppi um sprengiefnageymsluna síðustu tíu árin að sögn forsetans, en hann segir að um sé að ræða fjóra gáma af sprengiefnum.
Flugvöllurinn og ferjur á milli eyjanna er engu að síður enn starfandi „fyrir gesti“ samkvæmt opinberum reikningi yfirvalda á samfélagsmiðlinum X.
To all our visitors currently in the Seychelles, we kindly ask for your cooperation and understanding whilst the authorities handle the situation.
— The Seychelles Islands (@visitseychelles) December 7, 2023
The Seychelles international Airport is still operational and ferry services between islands are operating for visitors. pic.twitter.com/pJPSDfGJVL