Vladimír Pútín Rússlandsforseti hefur ákveðið að bjóða sig aftur fram til forseta í kosningum sem eru fyrirhugaðar í mars á næsta ári.
Rússneskar fréttastofur greindu frá þessu.
Þar með fær Pútín tækifæri til að framlengja enn frekar áratugalanga valdatíð sína í landinu. Fjögur ár verða á næsta ári liðin síðan hann sór síðast embættiseið sem forseti Rússlands.
Pútín sagði hershöfðingjanum Artyom Zhoga frá ákvörðun sinni eftir verðlaunaathöfn fyrir starfsfólk hersins í Kreml.