Ungt fólk í Kína leitar í auknum mæli til gervigreindar í leit að félagsskap þegar það er einmana.
Wang Xiuting, 22 ára nemi, sagði AFP að það væri alltof mikið vesen að fara á stefnumót með strákum í raunheimum. Samskipti hennar við GG-félaga sinn væru mun þægilegri.
Forritið sem hún notast við er kínverskt og nefnist Wantap.