Rússneski flugmaðurinn Maxím Kúsmínov, sem flúði til Úkraínu á herþyrlu á síðasta ári, fannst látinn eftir skotsár í bílakjallara á Spáni í liðinni viku.
Fram kemur í spænska ríkissjónvarpinu að Kúsmínov hafi búið á Alicante á Spáni undir dulnefni frá því hann flaug herþyrlu af gerðinni MI8 frá Rússlandi til Úkraínu í ágúst síðastliðnum.
🇷🇺 In his first interview since crossing over Maksim Kuzminov says he feels sorry for all the bloodshed that has occurred since the invasion
— The Telegraph (@Telegraph) September 4, 2023
Continue reading ⬇️https://t.co/T60t8LQK46 pic.twitter.com/SrIhWTU220
Spænska lögreglan staðfesti að maður hafi fundist látinn eftir skotsár en vildi ekki staðfesta að um Kuzminov væri að ræða.
Spænska dagblaðið La Informacion, sem fyrst sagði frá árásinni, segir að lögregla leiti tveggja manna sem grunaðir eru um glæpinn. Eru þeir sagðir hafa verið á bíl sem fannst brunninn í bæ nærri Alicante.
Liðhlaup Kúsmínovs til Úkraínu þótti táknrænn sigur fyrir yfirvöld í Kænugarði. Leyniþjónusta Úkraínu, GUR, sagði að Kúsmínov hefði verið lokkaður í liðhlaupið.
Reuters segir frá.