Leitar- og björgunarþyrla sem var á æfingarflugi vestur við eyjuna Sotra í Noregi hrapaði laust fyrir klukkan átta á staðartíma í kvöld. Allir sex áhafnarmeðlimir hafa verið fluttir á sjúkrahús, en ekki er vitað hvert ástand þeirra er.
Þyrlan hélt af stað frá bænum Bergen klukkan 18.24 í kvöld og lauk æfingu með flutningaskipi á Oseberg-olíu- og gassvæðinu um klukkustund síðar. Aðeins átta mínútum eftir að æfingu lauk missti þyrlan ratsjársamband samkvæmt heimildum norska ríkisútvarpsins.
Fengu bátar á svæðinu tilmæli um að leita að þyrlu sem stefndi í átt að vatnsyfirborði, en þyrlan var búin neyðarsendi sem virkjast sjálfkrafa er hann snertir vatn. Sendirinn sendir út stöðugt útvarpsmerki á 406 MHz tíðni og gerði þar með aðalbjörgunarstöðinni viðvart og kleift að finna þyrluna.
Tvær sjúkraflugvélar og björgunarþyrla frá norska hernum, SAR Queen, fóru á staðinn og hófu björgunaraðgerðir. Talið er að þyrlan hafi verið í vatninu í um 50 mínútur.
Um er að ræða Sigorsky S-92-þyrlu, en orkusamsteypan Equinor segir þyrluna annast þjónustu við olíupall á Oseberg, olíu- og gassvæði fyrirtækisins í Norðursjónum.