Stríðið á Gasasvæðinu á milli Ísraels og Hamas-samtakanna er „púðurtunna” sem gæti leitt til frekari átaka í Mið-Austurlöndum.
Volker Turk, yfirmaður mannréttindamála hjá Sameinuðu þjóðunum, greindi frá þessu.
„Stríðið á Gasasvæðinu hefur nú þegar haft hættuleg áhrif á nágrannalöndin og ég hef miklar áhyggjur af því að í þessari púðurtunnu getur hver neisti leitt til mun stærri eldsvoða. Slíkt hefði áhrif á allar þjóðir í Mið-Austurlöndum og margar til viðbótar,” sagði Turk í ræðu sem hann hélt í morgun.