Billund-flugvöllur í Danmörku var opnaður aftur klukkan 19 í kvöld að staðartíma, eftir að flugvöllurinn var rýmdur vegna sprengjuhótunar í morgun.
Karlmaður á fertugsaldri hefur verið handtekinn í tengslum við sprengjuhótunina á flugvellinum. Hlutur sem talinn er innihalda sprengiefni var handlagður af lögreglu.
Lögreglan á Suður-Jótlandi segir í tilkynningu að maðurinn hafi sjálfur tilkynnt um sprengiefnið sem hann skyldi eftir á flugvellinum.
Rannsókn stendur yfir á því hvort hótunin tengist því þegar hraðbanki var sprengdur upp við Nodmarksveg í Billund í nótt.