Unglingsstúlka í vesturhluta Wales á Bretlandseyjum hefur verið handtekin en hún er grunuð um að hafa reynt að ráða tveimur kennurum og einum samnemenda sínum bana með eggvopni í morgun.
Samkvæmt umfjöllun BBC átti atvikið átti sér stað í menntaskóla í bænum Ammanford laust eftir kl. 11 að staðartíma. Öll þrjú særðust en áverkar þeirra eru ekki lífshættulegir að sögn lögreglunnar á svæðinu.
Stúlkan er nú í gæsluvarðhaldi en lögreglan hefur einnig lagt hald á árásarvopnið.
Voru nemendur læstir inni í kennslustofum þar til óvissuástand vegna árásarinnar þótti yfirstaðið og biðu foreldrar óþreyjufullir eftir börnum sínum er þeim var loksins hleypt út eftir klukkan 15, en nemendur eru á bilinu 11-18 ára og eru um 2.000 talsins.
Atvikið hefur vaki' mikinn óhug í Bretlandi og hefur fjöldi stjórnmálamanna lýst samhug sínum með fórnarlömbunum, þar á meðal forsætisráðherrann Rishi Sunak.
Shocked at the news emerging from Ammanford today.
— Rishi Sunak (@RishiSunak) April 24, 2024
I want to thank the police and emergency services for their ongoing response and my thoughts are with all those affected.