Lögregluyfirvöld í New York hafa handtekið um 300 mótmælendur sem tóku þátt í mótmælum vegna stríðsins á Gasasvæðinu við Columbia-háskóla í borginni.
Eric Adams borgarstjóri sagði á blaðamannafundi fyrr í dag að ákveðið hefði verið að kalla til lögreglu í kjölfar þess að utanaðkomandi aðgerðarsinnar hefðu slegist í hóp mótmælenda.
Þá sagði Adams að gyðingahatur og andóf gegn Ísrael hefði færst í aukana meðal mótmælenda. Hann bætti við að aðgerðarsinnar hefðu ekki tekið þátt í mótmælunum á friðsamlegan hátt heldur reynt að skapa glundroða.
„Það er ekkert friðsælt við að hindra aðgang að byggingum, eyðileggja eignir eða taka úr sambandi öryggismyndavélar,“ sagði hann við blaðamenn.
Í gær tóku nemendur yfir Hamilton Hall, sem er ein af byggingum Columbia-háskólans, og læstu sig þar inni. Lögreglan ruddi sér leið inn í bygginguna og handtók nemendur í hópnum.
Adams sagði á fundinum að meðal þeirra sem hefðu brotist inn í bygginguna voru nemendur, en að aðgerðinni hefði verið stýrt af fólki sem tengist ekki háskólanum.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er ekki ljóst hvort þeir tæplega 300 sem voru handteknir í aðgerðunum eru nemendur eða utanaðkomandi einstaklingar. Verið er að fara yfir gögn til að varpa betur ljósi á það.
Lögreglan hefur nú fjarlægt tjaldbúðir af skólalóðinni og komið mótmælendum úr Hamilton Hall-byggingunni.
Allt skólastarf við Columbia-háskóla er nú í fjarkennslu og verður lögreglan með viðveru á háskólasvæðinu til 17. maí.