Í það minnsta sex manns fórust þegar öflugur skýstrókur reið yfir Texas og norðvestur Arkansans í Bandaríkjunum í nótt.
Börn voru meðal hinna látnu í Cooke-sýslu í Texas, sagði Ray Sappington sýslumaður, við fréttamenn. Að minnsta kosti tveggja barna er einnig saknað, sagði hann. Fleiri en 60 manns slösuðust en óttast er að fleiri hafi látist í náttúruhamförunum.
Óveðrið hefur valdið verulegu tjóni á fjölmörgum heimilum og fyrirtækjum að sögn sýslumannsins í Texas en björgunarmenn hafa í morgun leitað af týndu fólki og veita aðstoð til þeirra sem þurfa á henni að halda.
WIDESPREAD DAMAGE: Here's a look at the North Texas tornado aftermath along I-35 in Cooke County. Multiple fatalities have been reported in the area.
— WFAA (@wfaa) May 26, 2024
Live footage: https://t.co/lfA8xIJaD5
Latest updates: https://t.co/u0w4oPuDhq pic.twitter.com/0dY7GxN0TP