Ný ríkisstjórn hefur verið skipuð í Frakklandi, ellefu vikum eftir kosningar. Fyrsta verkefni ríkisstjórnarinnar verður að leggja fram fjárhagsáætlun fyir næsta ár.
Hægrimaðurinn Michel Barnier gegnir embætti forsætisráðherra, en hann tók við embættinu í byrjun mánaðar.
Nýju ríkisstjórninni var mótmælt í Frakklandi í dag, mótmælendur segja úrslit kosninganna hundsuð.
Enginn flokkur hlaut meirihluta í þingkosningunum, en Nýja lýðfylkingin, bandalag vinstriflokka, hlaut flest þingsæti. Næst flest sæti hlaut miðjubandalag Emmanuels Macrons Frakklandsforseta. Þjóðfylkingarflokkur Marine Le Pen hafnaði í þriðja sæti.