Fjöldi villtra dýra felldur í Afríku

Í síðustu viku tilkynntu stjórnvöld í Simbabve síðan að fella …
Í síðustu viku tilkynntu stjórnvöld í Simbabve síðan að fella ætti 200 fíla til að draga úr ágangi þeirra á þurrkasvæðunum. Myndin er úr safni. mbl.is/Inga

Áform tveggja Afríkuríkja, Namibíu og Simbabve, um að fella hundruð villtra dýra í löndunum hafa sætt harðri gagnrýni náttúruverndarsamtaka.

Miklir þurrkar hafa verið í suðurhluta Afríku og hefur verið lýst yfir neyðarástandi í þessum tveimur löndum og fleiri löndum vegna þeirra. Alþjóða matvælaáætlunin sagði í ágúst að um 1,4 milljónir Namibíumanna, nærri helmingur þjóðarinnar, upplifðu fæðuskort en kornframleiðsla landsins hefur dregist saman um 53% borið saman við síðasta ár og vatn í uppistöðulónum hefur lækkað um 70%.

Kjötinu dreift

Stjórnvöld í Namibíu tilkynntu í ágúst að til stæði að fella um 700 villt dýr til að draga úr álagi á vatnsból og beitilönd og kjöti af dýrunum yrði dreift til fólks sem byggi við fæðuskort. Atvinnuveiðimönnum var falið að fella dýrin en alls á að fella 30 flóðhesta, 60 vísunda, 50 impalahirti, 83 fíla, 100 gnýi, 100 antílópur og 300 sebrahesta. Flest dýrin sem fella á eru í þjóðgörðum landsins.

Dýraverndarsamtökin PETA hafa gagnrýnt þessi áform harðlega og á vef samtakanna segir Jason Baker, varaforseti PETA, að þau séu ekki aðeins grimmdarleg heldur gætu þau einnig haft langtímaáhrif á vistkerfi landsins.

Þá sendi hópur afrískra umhverfissinna frá sér sameiginlega yfirlýsingu um að dýradrápin gæfu hættulegt fordæmi fyrir ríkisstjórnir að hagnýta verndaða villta dýrastofna og þjóðgarða undir yfirskini mannúðarþarfa.

Fílum hefur fjölgað

Í síðustu viku tilkynntu stjórnvöld í Simbabve síðan að fella ætti 200 fíla til að draga úr ágangi þeirra á þurrkasvæðunum. Er þetta í fyrsta skipti í 35 ár sem skipuleg grisjun fer fram í fílastofni landsins og að sögn ZimParks, stofnunar sem stýrir þjóðgörðum landsins, er hún nauðsynleg vegna þess hve fjölgað hefur í stofninum á síðustu árum.

Tinashe Farawo, talsmaður þjóðgarðastofnunarinnar, sagði við AFP-fréttastofuna að áætlað væri að um 84 þúsund fílar væru í Simbabve og því myndu fyrirhugaðar veiðar lítil áhrif hafa á stofninn. Kjötinu verður dreift til fólks á svæðum þar sem matarskortur er og tennurnar verða settar í geymslur þar sem fyrir eru um 130 tonn af fílabeini, en fílabeinið hefur safnast upp vegna þess að í gildi er alþjóðlegt bann við sölu þess.

Fílaveiðarnar hafa sætt gagnrýni, ekki síst vegna þess að fílar hafa mikið aðdráttarafl fyrir ferðamenn í landinu. 

Nánar má lesa um málið í laugardagsblaði Morgunblaðsins.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert