Fjórir eru látnir og tugir eru særðir eftir skotárás í Alabama-ríki í Bandaríkjunum.
Lögregla segir að nokkrir árásarmenn hafi skotið að hópi fólks rétt eftir klukkan 23 á staðartíma í gær. Árásin átti sér stað í borginni Birmingham í Alabama-ríki.
Þrír voru úrskurðaðir látnir á vettvangi, tveir fullorðnir karlmenn og ein fullorðin kona. Sá fjórði lést á sjúkrahúsi. Eins og segir særðust tugir í árásinni, en fjórir eru í lífshættu.
Enginn hefur verið handtekinn vegna málsins.