Ísraelski herinn gerði loftárásir á innviði uppreisnarmanna Húta í Jemen í dag í kjölfar þess að Hútar skutu flugskeyti í átt að Ben Gurion-flugvellinum í Ísrael í gær.
David Avraham, talsmaður Ísraelshers, segir í yfirlýsingu til AFP-fréttastofunnar að tugir flugvéla flughersins, þar á meðal orustuþotur, hafi ráðist á skotmörk sem Hútar hafa notað í hernaðarlegum tilgangi.
Ráðist var á tvö orkuver og hafnarsvæði í Hodeida þar sem Hútar fluttu inn olíu og tóku við vopnum frá Írönum, að er segir í yfirlýsingu frá hernum.
„Árásin var gerð til að bregðast við nýlegum árásum Húta á Ísraelsríki,“ segir í yfirlýsingunni.
Hútar greindu frá því í gær að þeir hefðu skotið flugskeyti í átt að Ben Gurion flugvellinum í Tel Avív þegar Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, kom til landsins frá New York.
Hútar réðust á íbúðablokk í Tel Avív í sumar og lést einn Ísraeli og fjórir aðrir særðust.
Ísraelsmenn svöruðu þeirri árás einnig með því að ráðast á hafnarsvæðið í Hodeida.
⭕️BREAKING: The IAF struck military targets belonging to the Houthi terrorist regime in Yemen in response to their recent attacks against Israel.
— Israel Defense Forces (@IDF) September 29, 2024
The targets included power plants and a seaport, which were used by the Houthis to transfer Iranian weapons to the region, in… pic.twitter.com/QaWSD3uMEJ