Harður árekstur varð á Eyjafjarðarbraut eystri sunnan við bæinn Uppsali skömmu fyrir klukkan ellefu í morgun.
Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Akureyri skullu saman jepplingur og fólksbíll sem komu úr gagnstæðum áttum og þurfti að losa ökumann annarar bifreiðarinnar úr henni með klippum.
Ökumennirnir voru einir í bílunum og voru báðir fluttir töluvert slasaðir á sjúkrahús. Bílarnir eru báðir ónýtir.