Hækkun hjá ÓB og Shell

AFP

Shell og ÓB hafa hækkað verð á eldsneyti um fimm krónur líkt og N1 og Olís. Þar kostar nú bensínlítrinn rétt rúmar 260 krónur í sjálfsafgreiðslu en lítrinn er tveimur krónum dýrari hjá Shell.

Bensínverðið hefur ekki breyst hjá Orkunni og Atlantsolíu.Hjá Orkunni kostar bensínlítrinn 255,2 kr. og er lítrinn 10 aurum dýrari hjá Atlantsolíu líkt og vanalega.

Nánar um eldsneytisverð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka