Allri áhöfn Kleifabergsins, skips Brims hf. hefur verið sagt upp störfum. Um fimmtíu manns eru í áhöfninni og er helmingur á sjó í einu. Stefnt er að því að ráða sem flesta aftur til starfa hjá öðrum skipum fyrirtækisins.
Kleifabergið er 40 ára gamalt skip og fer nú í úreldingu. Guðmundur Kristjánsson, útgerðarmaður hjá Brimi, segir að skipið hafi reynst vel en það hefur verið í eigu Brims í um sex ár. Nú sé hins vegar tímabært að leggja því.
Sjómenn eru ráðnir á skip, ekki til útgerðar, minnir Guðmundur á. Því þurfi að gera nýja ráðningarsamninga við þá sem ráðnir verða á önnur skip Brims.
Í haust er stefnt að því að nýr frystitogari Brims, Skálaberg, hefji veiðar.