Banaslys varð á Suðurlandsvegi skammt austan við afleggjarann að Meðallandsvegi í Vestur-Skaftafellssýslu til móts við Hrífunes á fjórða tímanum í dag. Tveir eru látnir.
Ökumaður missti stjórn á bifreið sinni með þeim afleiðingum að tveir köstuðust út úr bifreiðinni. Tveir eru látnir og eru þyrlur Landhelgisgæslunnar að flytja aðra tvo á sjúkrahús í Reykjavík. Annar þeirra er alvarlega slasaður, en fjórir voru í bifreiðinni.
Suðurlandsvegur er lokaður og umferð beint um hjáleið um Meðalland. Lögregla veitir ekki frekari upplýsingar um málið að svo stöddu en lögreglumenn, sjúkraflutningamenn og björgunarsveitir eru við störf á vettvangi.