Áhyggjufullur faðir hafði samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu eftir miðnætti í nótt þar sem dóttir hans sæti föst í strætisvagni.
Stúlkan hafði farið í strætisvagn við Hlemmtorg en sofnað í vagninum með áðurnefndum afleiðingum. Hún vaknaði síðan eftir klukkan eitt um nóttina og var þá læst inni í strætirvagninum. Tókst henni að hafa samband við föður sinn og láta hann vita af aðstæðum sínum.
Lögreglan sá til þess að stúlkan væri leyst úr prísundinni.