Fundir í kjaradeilum Skurðlæknafélags Íslands við ríkið og Félags tónlistarskólakennara við sveitarfélögin hófust nú klukkan tvö í húsi ríkissáttasemjara.
Verkfall tónlistarskólakennara hefur staðið yfir í rúma viku en verkfall skurðlækna hefur verið boðað frá og með næsta þriðjudegi.