Miðasala á Iceland Airwaves 2015 hefst á hádegi í dag, mánudaginn 1. desember á heimasíðu hátíðarinnar. Sérstakt forsöluverð verður í boði fyrir þá fyrstu sem kaupa. Í ár var uppselt á hátíðina og hefur fjöldi erlendra gesta sem heimsóttu Reykjavík á Iceland Airwaves aldrei verið meiri.
Hátíðin verður haldin dagana 4. til 8. nóvember árið 2015 og er undirbúningur þegar hafinn og verða fyrstu listamennirnir kynntir til leiks snemma á næsta ári, segir í fréttatilkynningu.