Björgunarsveitir úr Eyjafirði hafa verið kallaðar út eftir að tilkynning barst um slasaðan vélsleðamann í Litlahnjúki, nyrst í Hlíðarfjalli. Ekki er vitað um ástand mannsins á þessari stundu.
Björgunarmenn eru á leið á slysstað á vélssleðum og snjóbíl og eru sjúkraflutningamenn með í för, að því er segir í tilkynningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg.