Þurfa sárlega á hjálp að halda

UNICEF vinnur að því að meta eyðileggingu sem orðið hefur …
UNICEF vinnur að því að meta eyðileggingu sem orðið hefur á innviðum samfélagsins. AFP

Tugþúsundir barna þurfa sárlega á hjálp að halda á Kyrrahafseyjunni Vanuatu eftir að fellibylurinn Pam skall á eyjunni síðastliðinn föstudag. Um 60.000 börn eiga um sárt að binda vegna fellibylsins. 

Þetta kemur fram í tilkynningu frá UNICEF. 

„Þetta var eins og kominn væri heimsendir,“ er haft eftir Alice Clements, einni af starfsfólki UNICEF í höfðuborg Vanuatu, Port Vila, í tilkynningu um það þegar fellibylurinn gekk yfir. „Vindurinn var geysilega sterkur og reif af þök, eyðilagði heimili, skóla og sjúkrahús. Ótal heimili eru rústir einar og heilu samfélögin hafa gjörsamlega eyðilagst.“

Aðgangur að hreinu drykkjarvatni, salernis- og hreinlætisaðstöðu hefur farið úr skorðum á mörgum stöðum á Vanuatu, þar á meðal í miðstöðvum þar sem fólk hafði leitað skjóls í aðdraganda fellibylsins.

Slíkt eykur mjög á hættuna á smitsjúkdómum. UNICEF styður stjórnvöld á Vanuatu og vinnur með samstarfsaðilum við að útvega vatnstanka, vatnshreinsitöflur, hreinlætisgögn og koma á fót tímabundinni hreinlætisaðstöðu.

UNICEF vinnur að því að meta eyðileggingu sem orðið hefur á innviðum samfélagsins. Leikskólar og skólar hafa orðið fyrir skemmdum en margar slíkar byggingar eru notaðar sem miðstöðvar fyrir fólk sem nú hefur misst heimili sín. Skólaganga fleiri en 70.000  barna hefur þess vegna farið úr skorðum.

UNICEF dreifir nú hjálpargögnum sem höfðu verið flutt á vettvang áður en fellibylurinn skall á. Enn meiri hjálpargögn verða send til eyjarinnar á morgun.

„Verið er að ljúka við að pakka hjálpargögnunum í dag og þau verða send hingað með flugi á morgun. Hjálpargögnin sem um ræðir eru meðal annars pakkar af næringarsöltum, vítamín, ormalyf, skólagögn, þroskaleikföng fyrir yngstu börnin, hreinlætispakkar, vatnstankar, sápa, vatnsbrúsar og vatnshreinsitöflur,“ er haft eftir Alice.  

Frá Vanuatu.
Frá Vanuatu. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert