Ók á 130 km hraða á Reykjanesbraut

Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Nokkuð hefur verið um að ökumenn hafi verið staðnir að hraðakstri í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum undanfarna daga.

Einn þeirra mældist á 121 km hraða þar sem hámarkshraði er 70 km/klst. Hans bíður 80.000 króna fjársekt, svipting ökuleyfis í einn mánuð og þrír refsipunktar í ökuferilsskrá. Aðrir mældust á 118 til 130 km hraða á Reykjanesbraut þar sem hámarkshraði er 90 km/klst.

Þá voru nokkrir ökumenn staðnir að öðrum brotum á umferðarlögum, svo sem að virða ekki stöðvunarskyldu. Enn fremur fjarlægði lögregla skráningarnúmer af bifreiðum sem ýmist voru óskoðaðar eða ótryggðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert