Björgunarsveitir frá Hellu og Hvolsvelli voru kallaðar út í dag þegar tilkynning barst um slasaðan fjórhjólamann við Glaðheima á Fjallabaksleið nyrðri. Þyrla Landhelgisgæslunnar var einnig kölluð á staðinn.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landsbjörg.
Það var ferðafélagi hins slasaða sem hringdi í Neyðarlínu eftir aðstoð. Um 25 björgunarsveitarmenn fóru af stað en þyrla Landhelgisgæslunnar var komin með manninn um borð kl. 15.40 og verið er að flytja hann á sjúkrahús í Reykjavík.
Samkvæmt tilkynningunni munu björgunarsveitir þó fara á slysstað með lögreglu, sem sinnir rannsókn slyssins, auk þess sem þær munu sækja fólk sem er á vettvangi og flytja fjórhjól hins slasaða til byggða.
Upplýsingar um líðan hins slasaða liggja ekki fyrir eins og stendur.
Uppfært kl. 16.44:
Samkvæmt tilkynningu frá Landhelgisgæslunni barst henni beiðni um aðstoð kl. 13.42 í dag. Þyrlan fór í loftið um kl. 14.10 og lenti með manninn við Landspítalann í Fossvogi kl. 16.00.