Kennslanefnd ríkislögreglustjóra hefur borið kennsl á líkið sem fannst í Laxárdal í Nesjum hinn 18. ágúst sl. Staðfest er að um að ræða 19 ára gamlan franskan ríkisborgara að nafni Florian Maurice François Cendre.
Rannsókn málsins verður framhaldið hjá lögreglustjóranum á Suðurlandi, segir í tilkynningu frá kennslanefnd ríkislögreglustjóra.