Malbikað á Miklubraut

mbl.is/Ernir Eyjólfsson

Unnið er að malbikun á Miklubraut til austurs. Vinnusvæðið byrjar við gatnamót við Lönguhlíð og nær að gatnamótum við Kringlumýrarbraut. Ein akrein verður lokuð í einu og umferð hleypt fram hjá. Áætlað er að verkið standi yfir frá klukkan sex og því ljúki um 17.

Vegfarendur eru beðnir um að virða lokanir og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin. Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum, segir í tilkynningu á Facebook-síðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert