Of snemmt er að segja til um hvort mannabeinin sem fundust í Skaftártungu í gær séu af eiganda sverðsins sem fannst á svipuðum slóðum í síðasta mánuði. Sverðið er frá tíundu öld. Það verður þó að teljast ansi líklegt að mannabeinin tengist fundinum á sverðinu að sögn Ugga Ævarssonar, fornleifafræðings hjá Minjastofnun.
Frétt mbl.is: Fundu mannabein skammt frá sverðinu
Þrír fornleifafræðingar eru nú við rannsóknir á svæðinu, tveir starfsmenn Minjastofnunar og mannabeinasérfræðingur frá Fornleifastofnun. Að sögn Ugga verða tvær tilgátur sannreyndar, hvort um sé að ræða gröf sem áin hafi framkallað eða hvort fornmunirnir hafi borist niður með ánni.
„Við vorum bara að lenda og nú er bara að vinda okkur í að skoða ummerkin,“ segir Uggi í samtali við mbl.is. „Við erum að fá yfirsýn yfir dreifinguna á þessu. Við munum grafa niður og sjá hvort það sé eitthvað enn neðar, og ganga meðfram ánni.“
Frétt mbl.is: Fundu sverð frá tíundu öld
Uggi segir að beinin verði tekin með í bæinn að rannsókn lokinni þar sem mannabeinasérfræðingurinn getur kyn- og aldursgreint beinin.
„Við sjáum til hvernig gengur í dag, og við verðum áfram í nótt ef við náum ekki að klára í dag. Við erum með dróna og ætlum að sjá hvort við komum honum á loft. Það er svolítið hvasst, en við sjáum til,“ segir Uggi en hann segir það gríðarlega byltingu að geta séð samhengi hlutanna í gegnum augu drónans. „Það getur verið erfitt að átta sig á jörðu niðri.“