Um 650 manns komu í Þjóðminjasafnið í dag, gagngert til að skoða sverð frá tíundu öld, sem fannst í landi Ytri-Ása í Skaftafellssýslu í síðasta mánuði. Þetta segir Anna Rut Guðmundsdóttir, kynningarfulltrúi safnsins, í samtali við mbl.is.
Sverðið var til sýnis fyrir almenning í Þjóðminjasafninu í dag, ásamt spjótinu og hnífnum sem fundust um síðustu helgi, í kumli með mannabeinum sem talin eru tilheyra eiganda sverðsins.
„Í heildina koma jafnan á milli þrjú til fjögur hundruð manns á sunnudögum. Þar af eru yfirleitt 80 prósent ferðamenn. Þetta var fyrir utan það, svo heildarfjöldinn á safninu í dag var í kringum 1.200 manns,“ segir Anna Rut.
Bætir hún við að margir hafi borgað sig inn á sjálft safnið til að skoða fleiri safngripi, eftir að hafa litið sverðið augum.
Sverðið er geymt í sérstökum kassa, til að hindra að raki komist að því.
„Það verður að vera í þurru andrúmslofti, ef það er mikið að flakka á milli mismunandi aðstæðna þá tærist það upp, og því er það í kassanum til að halda sama hitastigi á því.“